top of page
Unnur front 2.png

Brottför eftir:

Blue Skies

Ferðin er 15. – 22. október 2025 til Kanarí – Maspalomas
Heilsurækt huga, líkama og sálar til Kanarí er endurnærandi heilsu- og lífstílsnámskeið og upplifun þar sem Unnur Pálmarsdóttir stýrir fjölbreyttri dagskrá sem inniheldur skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar  og fyrirlestra sem endurhlaða líkama, vellíðan og sál.

 

082_1__1.jpg

Við förum morgungöngur meðfram ströndinni, Fusion Pilates, Fitness Yoga, dönsum og njótum. Einnig verður styrktarþjálfun í tækjasal, teygjur og fleira. Unnur verður með fyrirlestra sem fjalla um bætta lýðheilsu, markmiðasetningu, uppbyggingu sálar og huga. Í ferðinni er lögð áhersla á að njóta líðandi stundar, núllstilla hugann, minnka streituna og lifa í núinu.

Tilgangur er einnig að fræðast um bætt lífsgæði og stunda heilsurækt og líkamsrækt undir berum himni.  Ávinningur starfsmanna er endurmenntun á sviðið starfsþróunar, heilsuræktar,  fræðslu og hvernig er hægt að minnka streitu í lífi og starfi. Unnið er með hvernig  hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags og bæta samskipti á  vinnustað. Ferðin er upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að  vinna sig frá streitu, núllstilla sig. Fyrirlestrar eru fræðandi og fjalla um bætta heilsu og vellíðan til að auka fræðslu og skilning á efninu.

Ferðin er fyrir alla aldurshópa, heilsuræktarunnendur og einnig þá sem hafa greinst með slit- og vöðvagigt og fleira.

Unnur Pálmarsdóttir er einn reyndasti hóptímakennari og þjálfari landsins.

Hún hefur kennt hóptíma og þjálfað landsmenn í yfir 32 ár. Hún er með MBA gráðu frá H.Í., diplómanámi í mannauðsstjórnun og M.Sc. gráða í mannauðsstjórnun.

Í ferðinni er lögð áhersla á að njóta lífsins, stunda heilsurækt undir berum himni, Pilates, Yoga, gönguferðir, dans, fyrirlestrar, skoðunarferðir um eyjuna fögur og sameiginlegt borðhald í lok ferðarinnar.

Unnið er með hvernig hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags. Allir eru velkomnir í þessa ferð. Þú getur komið með hvort sem þú hefur prófað Pilates, Yoga, dans eða stundað heilsurækt og hreyfingu. Ferðin er einnig upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu og hlaða batteríin í lífinu.

Einkunnarorð Unnar eru gleði, hamingja og við eigum aðeins einn líkama. Því er mikilvægt að huga vel að líkama og sál.

unnur_edited.png
Myllubakkaskóli

BULL VITAL SUITES & Spa Boutique Hotel - Adult only

Dvalið verður á hinu huggulega BULL Vital Suites sem er góð 4ra stjörnu gisting við  Maspalomas golfvöllinn. Hótelið hentar vel fyrir golfiðkendur. Hótelið er vel staðsett, á góðum stað nálægt Maspalomas sandöldunum frægu. Stutt er í alla þjónustu og eru veitingastsaðir og barir í næsta nágrenni.

Á hótelinu eru notalegar og rúmgóðar svítur.  Í  svítunum er svefnherbergi með hjónarúmi og svefnsófa í stofu. Svíturnar eru llar með svalir eða verönd, þær eru loftkældar með sjónvarpi, síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi (gegn gjaldi).

Frítt þráðlaust net er á hótelinu.

Garðurinn er suðrænn og gróskumikill, með góðri sólbaðsaðstöðu. Heilsulind hótelsins tekur vel á móti þér með margskonar líkamsmeðferðum. Á hótelinu er vel búin líkamsrækt

 DAGSKRÁ  (birt með fyrirvara) 

 

DAGUR 1, Miðvikudagur, 15. október  2025

Brottför frá Keflavík klukkan 08:55  Flogið með Play OG 640

 Áætluð lending á Las Palmas klukkan 14:40. Fararstjóri ferðast með hópnum út til Kanarí.

Akstur frá flugvelli að hóteli.

16:00 – 17:00 Unnur Pálmarsdóttir fararstjóri verður með kynningarfund og fer yfir dagskrá vikunnar í hótelgarðinum.

DAGUR 2, Fimmtudagur, 16. október  2025

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30 Fusion Pilates og morgunhugleiðsla

11:00 – 12:00 Fyrirlestur „Heilsurækt huga, líkama og sálar“

12:00 – 13:00 Gönguferð og svæðið skoðað. Unnur fer með hópinn í góða göngu um Ensku ströndina og niður að Dunas sandöldunum.

17:30 – 18:00 Styrktarþjálfun í tækjasal – TABATA stöðvaþjálfun

DAGUR 3, Föstudagur, 17. október 2025 .

Sigling í Puerto De Mogán með Yellow Boat og markaðurinn heimsóttur.

08:45 – 15:00 Við byrjum daginn á að vera sótt á hótelið kl. 08:45 og ferðinni er heitið til Puerto De Mogán. Við byrjum á því að skoða fræga markaðinn sem liggur meðfram þorpinu niður að höfninni. Þart taka á móti okur hjónin Marta og Ruben og við förum í dásamlega siglingu með Yellow Boat. Skoðunarferðin kostar aðeins 60 Evrur.

Innifalið er akstur fram og tilbaka, léttir drykkir, tapas réttir og sigling. Hægt er að fá lánað snorkl græjur. Við siglum með ekta kanarískum bát, Yellow Boat sem er þekktur og vinsæll. Í bátnum eru mjög góð sæti og borð fyrir alla. Siglt er meðfram ströndinni að sveitaþorpinu Tasarte. Á leiðinni sjáum við klettabelti með litskrúðugum jarðlögum. Þaðan er snúið við og siglt að El Perchel víkinni sem er aðeins hægt að komast að frá sjó. Þar er hægt að fara í sjóinn, snorkla fyrir þá sem vilja, en sjórinn er einstaklega tær á þessu svæði. Við víkina eru bornar fram léttar veitingar, drykkir eru í boði alla ferðina. Skráning og upplýsingar hjá fararstjóra í ferðinni.

day4-kanari-maspalomas-mars-2025-001.webp

DAGUR 4, Laugardagur, 18. október  2025

07:30 – 10:30 Morgunverður.

08:30 – 09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla

10:30 – 11:30 Morgunganga niður að Faro Vitanum að ströndinni á Maspalomas

11:30 – 12:30 Yoga og núvitund á Maspalomas ströndinni.

Hádegisverður á góðum veitingastað á Meloneras.

Frjáls tími það sem eftir er dags, tilvalið að njóta sólarinnar

DAGUR 5, Sunnudagur, 19. október  2025

07:30 – 10:30 Morgunverður.

Frjáls dagur. Upplagt er að skella sér til höfuðborgarinnar Las Palmas, Firgas, Amadores eða Puerto Rico. Það er gaman að skoða eyjuna fögru. Upplýsingar um eyjuna veitir fararstjóri.

day5-kanari-maspalomas-mars-2025-001.webp
day6-kanari-maspalomas-mars-2025-001.webp

DAGUR 6, Mánudagur, 20. október  2025

07:30 – 10:30 Morgunverður.

08:30 – 09:30 Fitness Pilates Flow og hugleiðsla

11:00 – 12:00 Fyrirlestur «Lífsgæði, næring og núvitund»

12:00 – 13:00 Styrktarþjálfun í tækjasal og góðar teygjur

19:30 – 20:30 Kvöldganga að Dunas Maspalomas sandöldunum þar sem við horfum á sólina setjast. Upplifun sem er yndisleg og engin má missa af.

DAGUR 7, Þriðjudagur, 21. október  2025

07:30 – 10:30 Morgunverður.

08:30 – 9:30 Fusion Pilates og Yoga

11:00 – 12:00 Fyrirlestur «Sjálfstraust & sigurvissa»

12:00 – 13:00 Stöðvaþjálfun í tækjasal og teygjur

18:30 – 22:00 Lokahóf fyrir hópinn. Kvöldverður og gleði á vel völdum veitingastað. Nánari upplýsingar veitir fararstjóri á staðnum.

day7-kanari-maspalomas-mars-2025-001.webp
day8-kanari-maspalomas-mars-2025-001.webp

DAGUR 8, Miðvikudagur, 22. október  2025

Heimferð með Play OG 641 frá Las Palmas brottför er klukkan 15:40 og lending í Keflavík klukkan 21:30

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30 Fusion Pilates fyrir flugið

Brottför frá hóteli og út á flugvöll, nánari tímasetning síðar hjá fararstjóra

Athugið að dagskráin getur breyst án fyrirvara.

Þátttaka í dagskrá er frjáls og ekki er skyldumæting.


  Staðfestingargjald er 350€ (+/- 50.000 kr) á manninn.
  Lágmarksþátttaka er 10 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka.

Bóka

Heildarverð ferðar

Verð per mann í tvíbýli : 1879€
(269.000kr miðað við gengið 20.júní ´25)

Verð per mann í einbýli:   2029€ 
(290.000kr
miðað við gengið 20.júní ´25)

Innfalið í ferðinni
- Flug með Play m/ 20kg innritaður farangur
- 7 nætur á Bull Vital Suites & Spa Boutique hotel 4★
- Morgunmatur
- Aðgangur að Spa
- Aðgangur að líkamsrækt
- Jógadýnur eru í boði fyir alla í ferðinni

- Dagskráin með Unni Pálmadóttur
- Fyrirlestrar
- Hóptímar
- Yogatímar
- Lífstílsráðgjöf

- Allur akstur tengdri dagskrá í tilboði
 

Staðfestingar greiðsla

Fjöldi stéttarfélaga veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu eða endurmenntun. Kynntu þér þín réttindi, kannaðu styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það sé fyrir þessa ferð. Sendu á unnur@fusion.is til að fá fylgiskjöl til að sækja um styrk.

Playa Del Ingles

Þekktasti áfangastaðurinn á Kanarí er án efa Playa del Ingles eða „enska ströndin“. Líflega Playa del Ingles hefur upp á svo margt að bjóða, fallega strönd, huggulega veitingastaði og úrval verslana. Fyrir þá skemmtanaþyrstu er af nægu að taka í næturlífinu, hvort sem það er töff næturklúbbar, lifandi tónlist eða kabarett, þú finnur það á Playa del Ingles. Hvort sem þú vilt dvelja í Kasbah hverfinu eða nær Yumbo verslunarmiðstöðinni þá eigum við gistingu fyrir þig.

Meloneras

Sjarmi Meloneras er óneitanlegur. Á suðausturhluta eyjunnar er þessi fallegi staður þar sem flottar verslanir framúrskarandi veitingastaðir og gullfallegar strendur standa fyrir sínu. Hótelin eru glæsileg og mikið er um lúxus fjölskylduhótel þar sem allir í fjölskyldunni finna eitthvað við sitt hæfi.

Maspalomas

Maspalomas er vel þekkt nafn vegna fallega vitans El Faro við enda strandarinnar og fallegu sandhólanna sem liggja að bænum. Maspalomas er rólegri en Playa del Ingles. Þar eru verslanir með merkjavöru og fyrsta flokks veitingastaðir, margir staðsettir við fallega ströndina. Falleg strandgatan er með verslunum, kokteilbörum og veitingastöðum, skemmtilegt er að ganga eftir henni að degi jafnt sem kvöldi.

bottom of page