SANTIAGO DEL TEIDE TIL MASCA

Roque Del Conde
Sumt þarf ekki útskýringu – bara ÚTSÝNI.
Roque Del Conde
-
Dagsetning: Alla Miðvikudaga
-
Tími: 09:00 - 14:00
-
Vegalengd: 7 km
-
Göngutími: 3 - 4 kls.
-
Heildar tími ferðar: 6 kls
-
Hækkun: 600m
-
Erfiðleikastig 4: Erfið ferð, hentar einungis fólki sem er í þokkalegu formi og hefur einhverja reynslu af fjallgöngum.
-
lágmarks Fjöldi: 4 manns (upplýsingar)
-
Verð: 80€
Muna! Að taka með nóg af vatni, höfuðfat, sólarvörn og klæðast viðeigandi skóm.
Innifalið:
-
Íslenskur fararstjóri
-
Fararskjóti til og frá hóteli
Roque Del Conde
5 klst - 80€
Fararstjóri
Íslenska
Rúta
Lýsing á ferð
Við sækjum ykkur á hótelið og keyrum til Arona, þar sem gangan hefst í um 630 metra hæð. Þaðan liggur leiðin upp á fjallið og við göngum hækkunina á rólegum og þægilegum hraða – alltaf miðað við hópinn og án þess að fara hraðar en hægasti þátttakandinn.
Þegar við komum upp á hrygginn, í um 800 metra hæð, opnast stórbrotið útsýni yfir alla suðurströnd Tenerife. Þar tökum við stutt stopp til að ná andanum og fá okkur vatn áður en við höldum áfram upp á toppinn.
Síðasti kaflinn er á köflum brattur og grýttur, og því mikilvægt að vera í góðum skóm með góðu gripi.
Á toppi Roque del Conde (1.004 m) tekur á móti okkur einstakt útsýni yfir eyjuna. Þar gefst tími til að fá sér nesti, njóta augnabliksins og taka myndir – þetta er einn besti staðurinn á suðurhlutanum til að ná fallegum myndum (Hér leynist jafn vel nýja prófíl myndin þín).
Sækjum á
Los Cristianos • Las Américas • Adeje (þó ekki vestur af La Caleta)
Athugið
Lágmarksfjöldi í ferðina er 4 þátttakendur.
Ef sá fjöldi næst ekki gæti þurft að fella ferðina niður eða færa hana til.
























