Vertu velkomið haust!
Haustið er farið að nálgast hér á Tenerife og við erum farin að hlakka mikið til komandi vetrar. Sumarið hjá okkur hefur verið frekar rólegt, en við höfum nýtt tímann vel til að undirbúa veturinn, þróa nýjar ferðir og hugsað um hvernig við getum gert upplifunina hjá Tenerife Ferðum enn betri. Nú er nýja vetrardagskráin okkar tilbúin.
Veturinn á Tenerife
Það er eitthvað yndislegt við Tenerife yfir vetrarmánuðina. Á meðan veturinn er að skella á heima á Íslandi, með sínum kulda og myrkri, ríkir hér hið endalausa vor – sól, birta, hlýja og milt loftslag.
Við Íslendingar höfum lært að meta þetta og vitum hversu nauðsynlegt það er að geta tekið smá pásu frá íslenska vetrinum. Að komast aðeins úr þykku vetrarfötunum, finna sólina og hlýjuna á húðinni og fá smá áfyllingu af D-vítamíni gerir einfaldlega ótrúlega mikið fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu.

Íslendingar hafa farið í vetrarfrí til Kanarí í meira en hálfa öld?
Það sem í dag er nánast orðinn hluti af íslenskri vetrarmenningu byrjaði fyrir alvöru að taka við sér á sjöunda áratugnum. Upp úr 1970 fóru Íslendingar að flykkjast í sólarlandaferðir og Kanaríeyjar urðu einn vinsælasti áfangastaðurinn þegar veturinn skall á heima.
Gran Canaria og Tenerife hafa því tekið á móti íslenskum sólarþyrstum ferðalöngum í áratugi. Það eru því ákveðin forréttindi að við hjá Tenerife Ferðum séum í dag hluti af þessari rúmlega 60 ára sögu Íslendinga á Kanaríeyjum.
Kanaríeyjar eru og verða líklega alltaf mikilvægur staður fyrir íslensku þjóðarsálina yfir vetrarmánuðina. Það er ekki að ástæðulausu. Beint flug, stutt ferðalag, enginn tímamunur og síðan sól og hlýja þegar veturinn er sem dimmastur heima.
Eftir því sem flugsamgöngur hafa orðið hagkvæmari og aðgengilegri hafa Kanaríeyjarnar nánast orðið hluti af íslenskum vetri. Þær hafa hjálpað heilli þjóð að komast í gegnum langa og dimma vetrarmánuði og gefið okkur tækifæri til að skipta kulda og myrkri út fyrir sól, birtu og hlýu.
Stundum er Tenerife kannski „cool“ og vinsælt – og stundum ekki. En samband Íslendinga við Tenerife og Kanaríeyjarnar er miklu dýpra en einhver tískubylgja í utanlandsferðum. Eyjarnar hafa áratugum saman verið okkar öruggi staður yfir veturinn. Staðurinn sem við vitum að er þarna, þegar okkur vantar smá sól, hlýju og hvíld frá íslenska vetrinum.
Kanaríeyjarnar eru einfaldlega orðnar hluti af íslenskri þjóðarsál.

Ný útgáfa af Matur og vín
Í vetur ætlum við líka að bjóða upp á nýja útgáfu af einni af vinsælustu ferðunum okkar – Matur og vín.
Við verðum að þessu sinni með aðra vínekru. Við fundum nýlega einstaklega fallegan stað þar sem við hittum fólk sem deilir sömu ástríðu fyrir góðum mat og góðu víni og við. Vínekran er virkilega falleg, vínin dásamleg og maturinn alveg frábær og mikill saga á staðnum (Víngerðin síðan 1750). Við erum því mjög spennt að geta boðið gestum okkar upp á þessa nýju upplifun.
Það verður vissulega svolítið skrýtið að fara ekki til hans Pablo, enda hefur hann verið stór hluti af þessari ferð hjá okkur í gegnum árin. En kannski er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Við erum allavega sannfærð um að þetta verði frábær viðbót við dagskrána.

Nýjar VIP-ferðir
Ein af stærstu nýjungunum í vetur eru nýju VIP-ferðirnar okkar.
Hugmyndin er fyrst og fremst að gera ferðirnar þægilegri, persónulegri og meira á ykkar forsendum.
Við erum aðeins með 4 manna lágmark í þessar ferðir og getum því oft farið af stað með mjög litla hópa. Það gefur okkur líka meiri möguleika á að aðlaga ferðina að þeim sem með okkur fara. Til að byrja með ætlum við að bjóða upp á þrjár VIP-ferðir í viku.
Við erum mjög spennt fyrir þessari nýjung og teljum að hún muni henta sérstaklega vel þeim sem vilja upplifa meira af Tenerife án þess að vera í stórum hópi.

Tenerife Ferðir er líka ferðaskrifstofa
Tenerife Ferðir er ekki bara dagsferða- og afþreyingarfyrirtæki. Við erum einnig ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ferðum til Tenerife og undanfarin ár höfum við farið með yfir 1.000 kennara í námsferðir til Tenerife.
Við höfum meðal annars skipulagt námsferðir þar sem hópar heimsækja skóla hér á eyjunni, fræðast um spænskt skólastarf og sameina námið við allt það sem Tenerife hefur upp á að bjóða. Í vetur ætlum við að taka þetta skrefinu lengra.
Við erum að kynna nýja og stærri dagskrá fyrir námsferðir og bjóða upp á fleiri útfærslur fyrir mismunandi hópa og starfsstéttir. Við erum meðal annars að vinna að sérstaklega spennandi og áhugaverðum ferðum fyrir leikskólakennara og hjúkrunarfræðinga, þar sem áherslan verður á fræðslu, heimsóknir, upplifun og faglegt innihald.
Og það er margt fleira í undirbúningi sem við getum ekki alveg sagt frá ennþá. Þetta er því spennandi tími hjá Tenerife Ferðum og við sjáum mikil tækifæri í því að geta boðið upp á bæði skemmtilegar ferðir og vel útfærðar náms- og hópaferðir.

Hverjir verða með ykkur í vetur?
Í vetur verða það Jóna Dís og Auðunn sem halda utan um fararstjórnina hjá Tenerife Ferðum.
Jóna Dís verður aðalfararstjórinn okkar og mun taka á móti ykkur og sjá um flestar ferðirnar. Hún verður því líklega sú sem flestir hitta og kynnast í vetur.
Auðunn verður áfram á fullu í Tenerife Ferðum og mun sjá sérstaklega um gönguferðirnar, minni ferðir, skrifstofuna og vera helsti tengiliður okkar úti á Tenerife – og auðvitað ýmislegt sem fer fram á bak við tjöldin. Hann verður því með annan fótinn í fararstjórninni og hinn í rekstrinum.
Maggi kom inn í fyrirtækið í byrjun árs og hefur þegar tekið virkan þátt í Tenerife Ferðum. Í vetur verður hann með annan fótinn á Íslandi og hinn hér á Tenerife. Hann mun því sinna verkefnum bæði héðan og að heiman og verður hluti af teyminu okkar í vetur.
Svali er auðvitað enn með okkur í fyrirtækinu. Eins og margir vita ætlar hann að vera á Íslandi í vetur, en við eigum alveg eins von á því að hann kíki reglulega yfir til Tenerife og heimsæki okkur.
Það eru því smá breytingar á liðinu okkar í vetur, en markmiðið er nákvæmlega það sama og alltaf: að gera dvölina á Tenerife skemmtilegri og gefa fólki tækifæri til að upplifa meira af þessari frábæru eyju, það verður líka að vera gaman því annars er leiðinlegt.
Eftir rólegt sumar erum við farin að hlakka mikið til haustsins og vetrarins. Við hlökkum til að sjá gamla vini, viðskiptavini og samstarfsaðila aftur – og auðvitað til að taka á móti öllum þeim sem eru að koma til Tenerife í fyrsta sinn.
Við sjáumst á Tenerife! 🇮🇨
Kær kveðja,
Auðunn, Jóna Dís, Maggi og Svali
Tenerife Ferðir



Comments