top of page

SANTIAGO DEL TEIDE TIL MASCA

Matur & Vín

  Ný og uppfærð útgáfa af þessari vinsælu ferð!  

Enn magnaðri upplifun fyrir bragðlaukana

Matur og Vín

  • Dagsetning:  Föstudaga 

  • ​Tími: 11:00 - 18:00

  • Heildar tími ferðar: 7 klst.

  • Aldurstakmark: 18 ára

  • Verð: 125€

​

​

Innifalið:

  • Fjagra rétta máltíð

  • Ýmis vín með matnum

  • Íslenskur fararstjóri

  • Fararskjóti til og frá hóteli

Matur og Vín

7 kls - 125€

Íslenskur Fararstjóri

Vínsmökkun

Skoðunarferð um vínekru

Rúta til og frá hóteli

4. rétta matseðill 

Ný útgáfa af einni af vinsælustu ferðum Tenerife Ferða

​

Langar þig að upplifa Tenerife í gegnum mat, vín, menningu og fallegt landslag?  Þá er Matur & Vín ferðin fyrir þig.

Við byrjum á því að sækja þig beint á hótelið og höldum síðan af stað í þægilegum bíl með íslenskum fararstjóra. Við keyrum hraðbrautina beina leið að Bodegas Monje, einni þekktustu víngerð Tenerife.

​

Þegar við komum á Bodeguna (vínekruna) förum við strax í áhugaverða ferð um víngerðina og fáum við innsýn í vínrækt á Tenerife og fáum að kynnast sögu og hefðum víngerðarinnar.

​

Eftir skoðunarferðina er komið að uppáhalds hluta margra – vínsmökkun og svo matur. 🍷

​

Við setjumst niður í notalegu umhverfi og njótum úrvals vína frá Bodegas Monje áður en borinn er fram glæsilegur kanarískur hádegisverður.

​​

🍽️  Matseðill

  • Forréttur

    • Úrval af brauði og áleggi

    • Vatnakarsesmjör, almogrote-ostamauk og chorizo-pylsa frá La Palma

    • „Tía Lola“ kjúklingabaunir

  • Fyrsti réttur

    • Grænmetiskrem með fjögurra korna gofio

  • Aðalréttur​

    • Viðareldað vínalæri með kartöflum, sætu grænmeti og grænu mojo-sósu með möndlum.

  • Eftirréttur

    • Kanarískur vanillubúðingur með vínsætri svampköku og Hollera-sultu.

    • Kaffi og brauð

​

Með matnum er boðið upp á ½ flösku af víni á mann, þar sem hægt er að velja úr úrvali hússins, bæði hvítvín, rósavín og rauðvín. 

​​

 Matur, vín og menning... og aðeins meira vín.​

​

​

Víngerðarfjölskylda frá árinu 1750

Monje-fjölskyldan hefur verið í víngerð allt frá 1750 – í um 276 ár. Þetta hefur gengið í gegnum kynslóðir og Felipe Monje, sem rekur víngerðina í dag, er fimmta kynslóðin í fjölskyldunni.

Þannig er þetta ekki bara fyrirtæki sem byrjaði sem ferðamannastaður – vínræktin var hluti af fjölskyldulífinu löngu áður en hugtakið „wine tourism“ varð til.  „Þegar við erum að smakka þessi vín erum við í raun að smakka hluta af fjölskyldusögu sem nær meira en 275 ár aftur í tímann.“

​

Monje ræktar meðal annars Listán Negro, Listán Blanco, Negramoll, Tintilla, Vijariego Negra og Marmajuelo.

Það áhugaverða er að þau vinna einnig með vínberjategundir sem eru fyrir phylloxera-smitið, þ.e. gömul erfðalína sem hefur varðveist frá fyrri tíð.

​

​

Viltu fá þessa ferð sem einkaferð?
Bókaðu ferðina sem einkaferð fyrir hóp eða fjölskyldu. Einkaferðir er mjög góður kostur sem veitir meira fresli og möguleikan á að  aðlaga ferðina að óskum.

Takk fyrir þið munuð heyra frá okkur á næstu dögum.

Matur og Vín

7 kls - 125€

bottom of page