SANTIAGO DEL TEIDE TIL MASCA

Augað
Hin hliðin á Tenerife sem fæstir sjá
Augað - El Agujero
-
Dagsetning: Alla Þriðjudaga
-
Tími: 09:00 - 15:00
-
Vegalengd: 7 km
-
Göngutími: 3 - 3,5 kls.
-
Heildar tími ferðar: 6 kls
-
Hækkun: 580m
-
Erfiðleikastig +3: Miðlungs erfið ferð, hentar einungis fólki sem er í þokkalegu formi og hefur einhverja reynslu af fjallgöngum og á köflum ekki fyrir lofthrædda.
-
lágmarks Fjöldi: 4 manns (upplýsingar)
-
Verð: 90€
Muna! Að taka með nóg af vatni, höfuðfat, sólarvörn og klæðast viðeigandi skóm.
Innifalið:
-
Íslenskur fararstjóri
-
Fararskjóti til og frá hóteli
Augað - El Agujero
6 klst - 90€
Fararstjóri
Íslenska
Rúta
Gatið - El Agujero
Gönguferð með einstöku útsýni
Við sækjum ykkur á hótelið og keyrum að upphafsstað í Tamaimo, þar sem gangan hefst í um 545 metra hæð. Þaðan liggur leiðin upp eftir fallegri en brattri hlíð þar sem landslagið breytist smám saman með hverju skrefi.
Eftir því sem ofar dregur opnast útsýnið sífellt meira, þar til við stöndum með víðáttumikið útsýni yfir Teno-fjöllin og dalina sem teygja sig út í allar áttir. Góðu (og kannski líka slæmu – fer eftir því hvernig þú lítur á það) fréttirnar eru að við tökum stærstan hluta hækkunarinnar strax í upphafi göngunnar. Við göngum alltaf á rólegum hraða, þannig að allir geti notið ferðarinnar og tekið sér regluleg stopp til að njóta útsýnisins og umhverfisins (ná andanum).
El Agujero – „Augað“?
Hápunktur ferðarinnar er klárlega El Agujero, náttúrulegt op í klettunum hátt uppi fyrir ofan Los Gigantes.
Á spænsku þýðir El Agujero einfaldlega „gatið“ – en þegar við fundum "augað" fyrst vissum við ekki nafnið og fórum að kalla það „augað“, augað sem horfir yfir hafið og landið.
Og það nafn festist bara – og satt að segja finnst okkur það líka passa miklu betur á íslensku.
Á leiðinni stoppum einnig við stóran kross í um 795 metra hæð þar sem er víðáttumikið útsýni yfir Teno-fjöllin og dalina (sumir fara með bænirnar).
Eftir gönguna keyrum við niður að Los Gigantes, þar sem við stoppum á kaffihúsi og horfum yfir björgin og svæðið sem við gengum um og virðum fyrir okkur afrek dagsins, þeir sem vilja fá sér drykk (bjór) eða aðra hressingu .
Athugið: Upphaf göngunnar er krefjandi og á síðasta kaflanum, við „augað“, gæti leiðin valdið smá óþægindum hjá þeim sem eru mjög lofthræddir.
Ef þú kemst upp á Esjuna ætti þessi ganga samt að vera vel viðráðanleg.











