top of page
IMG_3129.JPG

Anaga skaginn

Gönguferð á hinum fallega Anaga skaga.

Ganga

Lýsing á ferð

​

Anaga-skaginn er einn af fallegustu og sérstæðustu stöðum Tenerife og gjörólíkur því landslagi sem flestir þekkja af suðurhluta eyjarinnar. Hér tekur á móti okkur gróskumikill skógur, djúp gil, stórbrotin fjallasýn og einstakt náttúruumhverfi sem hefur varðveist í þúsundir ára. Fyrir göngufólk er þetta sannkölluð paradís og við hlökkum til að sýna ykkur þessa perlu.

​

Við förum aðeins með litla hópa, 4–6 manns, til að tryggja persónulega og notalega upplifun. Eftir að hafa sótt alla þátttakendur á hótelin leggjum við af stað í um 95 km akstur til norðausturs, sem tekur um 90 mínútur. Áfangastaðurinn er hið fallega fjallaþorp Las Carboneras, sem stendur í um 650 metra hæð yfir sjávarmáli á Anaga-skaganum. Þar hefjum við gönguna.

​

Genginn er um 8 km hringur um eitt fallegasta göngusvæði Tenerife. Leiðin liggur um gróskumikla lárviðarskóga, yfir fjallshlíðar og um stórbrotið landslag með ógleymanlegu útsýni. Gangan er nokkuð þægileg, en stígar geta verið hálir á köflum og því mikilvægt að vera í góðum gönguskóm.

Eftir um 4 km göngu komum við að hinu einstaka hellaþorpi Chinamada, þar sem búseta hefur verið allt frá tímum frumbyggja Tenerife, Guanchanna. Þorpið er eitt merkilegasta dæmið um hefðbundna hellabúsetu á eyjunni og gefur einstaka innsýn í lífshætti fyrri kynslóða.

​

Í Chinamada tökum við okkur hlé á hinum skemmtilega veitingastað La Cueva („Hellirinn“), þar sem þátttakendur geta keypt sér hádegisverð og smakkað ýmsa staðbundna kanaríska rétti.

Á leiðinni til Chinamada göngum við einnig fram hjá afskekktu svæði þar sem býr einsetumaður sem lifir nánast án nútímaþæginda, án tengingar við rafmagns- eða vegakerfi. Hann er á margan hátt lifandi tenging við fortíðina og gefur okkur sjaldgæfa innsýn í hvernig lífið á Tenerife var áður fyrr.

​

Eftir matarhléið röltum við um þessa heillandi hellabyggð áður en við höldum aftur af stað í gegnum fjölbreytta flóru og stórkostlegt landslag Anaga-skagans. Á leiðinni njótum við víðsýnis yfir hrikalegar strandlengjur og græna dali sem gera þetta svæði svo einstakt.

​

Þetta er ferð sem sameinar náttúru, sögu, menningu og einstaka innsýn í lífið á Tenerife – bæði fyrr og nú.

​

Muna að taka með: nóg af vatni, höfuðfat, sólarvörn, nesti, klæðast viðeigandi skóm.  Við munum hringa daginn fyrir brottför og láta ykkur vita með veðurspá. Á þessu svæði má alveg búast við að það geti ringt og gæti þurft að hafa meðferðis vatnshelda yfirhöfn.

​

ATH: Við sækjum og skilum á Hótel í Los Cristianos, Las Americas og Adeje (þó ekki vestur af La Caleta).

Upplýs

Anaga skaginn

  • Dagsetning: Alla fimmtudaga

  • ​Tími: 08:00 - 15:00

  • Vegalengd: 8 km

  • Göngutími: 3 kls.

  • Heildar tími ferðar:  8 kls

  • Hækkun: 390m

  • Erfiðleikastig 2.5:   Miðlungs erfið ferð, hentar fólki sem er í þokkalegu formi og hefur einhverja reynslu af göngu.

  • Lágmarks Fjöldi: 4 manns 

  • Hámarks Fjöldi: 7 manns 

  • Verð: 

    • Fullorðnir:  100€

    • Börn 6-12 ára: 60€)

​

Muna! Að taka með nóg af vatni, höfuðfat, sólarvörn, nesti og skóm með góðu gripi.

​

Innifalið: ​

  • Íslenskur fararstjóri

  • Fararskjóti til og frá hóteli

Anaga skaginn

8 kls - 100€

Íslenskur Fararstjóri

Keyrsla
200km

Göngutími
3 kls

Hækkun
390m

Ganga
8 km

Erfiðleikastig
2.5 

Anaga skaginn

8 kls - 100€

bottom of page